Fundur Umhverfis- og skipulagsráðs 23. mars
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 264. fundur haldinn í
fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, 23. mars 2017 og hófst
hann kl. 16:05
Fundinn sátu:
Margrét Rós Ingólfsdóttir formaður, Kristinn Bjarki Valgeirsson
aðalmaður, Ingólfur Jóhannesson aðalmaður, Esther Bergsdóttir aðalmaður,
Georg Eiður Arnarson aðalmaður og Sigurður Smári Benónýsson starfsmaður
sviðs.
Páll Marvin Jónsson og Stefán Óskar Jónasson sátu fundinn undir fyrsta lið fundargerðar.
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201503032 - Endurskoðun Aðalskipulags Vestmannaeyja.
Tillaga á vinnslustigi.
Skipulagsfulltrúi kynnti drög að tillögu Aðalskipulags Vesmannaeyja 2015-2035.
Ráðið leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga á
vinnslustigi verði auglýst og kynnt í samræmi við ákvæði 2. málsgreinar
30. greinar Skipulagslaga nr. 123/2010.
2. 201603056 - Deiliskipulag á athafnasvæði A-2.
Tekin fyrir að nýju deiliskipulagstillaga á athafnasvæði A-2.
Deiliskipulagið nær yfir lóðir á athafnasvæði vestan við Hlíðarveg og
Strandveg og næsta nágrenni upp af lóðunum í átt að Hánni og nálægu opnu
svæði við Sprönguna. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir 1000 m2
byggingarreit fyrir varmadælustöð við Hlíðarveg. Tillagan var auglýst
frá 1. feb. til 15. mars 2017. Engar athugasemdir bárust ráðinu.
Ráðið samþykkir tillögu deiliskipulags sbr. ákvæði Skipulagslaga nr.123/2010.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
3. 201702027 - Endurskoðun miðbæjarskipulags.
Lögð fram drög að breytingum á deiliskipulagi Miðbæjar.
Skipulagsdrög eru unnin er af skipulagshönnuðum Alta ehf. og er lögð
fram til kynningar á vinnslustigi.
Lagt fram.
4. 201703025 - Dalhraun 1. Umsókn um byggingarleyfi
Ólafur Þór Snorrason fh. Vestmannaeyjabæjar sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á Kirkjugerði sbr. innsend gögn.
Ráðið samþykkir með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
að framlögð gögn verði grenndarkynnt. Að grenndarkynningu lokinni mun
erindið verða tekið til afgreiðslu.
5. 201703023 - Vestmannabraut 61. Umsókn um lóð
Valur Andersen fh. Geirfuglaskers ehf. sækir um lóð nr. 61 við Vestmannabraut.
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað deiliskipulags. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. okt. 2017.
6. 201703024 - Vestmannabraut 63B. Umsókn um lóð
Valur Andersen fh. Geirfuglaskers ehf. sækir um lóð nr. 63B við Vestmannabraut.
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað deiliskipulags. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. okt. 2017.
7. 201703019 - Helgafellsbraut 5. Umsókn um lóð
Sigurjón Ingvarsson fh. Geldungs ehf. sækir um lóð nr. 5 við Helgafellsbraut.
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað umhverfis og
framkvæmdasviðs. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1.
okt. 2017.
8. 201703014 - Flatir 7. Umsókn um stöðuleyfi
Þór Engilbertsson f.h. 2Þ ehf. sækir um tímabundið leyfi fyrir nýju sementsílói á iðnaðarlóð við Flatir 7 sbr. innsend gögn.
Ráðið samþykkir tímabundið leyfi til 1 okt. 2017. Ráðið leggur
áherslu á að umhverfi og ásýnd lóðar sé með viðunandi hætti og bendir
umsækjanda á fyrri afgreiðslu ráðins vegna frágangs við lóðarmörk frá
mars 2016.
9. 201703012 - Höfðavegur 20. Umsókn um byggingarleyfi
Húseigandi sækir um leyfi fyrir breytingum á útliti suðurhliðar og leyfi fyrir sólpalli sbr. innsend gögn.
Erindi samþykkt
10. 201703010 - Hlíðarvegur 4. Framkvæmdaleyfi
Ívar Atlason f.h. HS-Veitna ehf. sækir um leyfi fyrir jarðvegsmön á lóð fyrirtækisins sbr. innsend gögn.
Erindi samþykkt. Frágang við jarðvegsmön skal vinna í samráði við umhverfis og framkvæmdasvið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:05
http://www.eyjafrettir.is/frettir/fundur-umhverfis-og-skipulagsrads-23-mars/2017-03-27
Pálmi Freyr Óskarsson ·
"6. 201703024 - Vestmannabraut 63B. Umsókn um lóð
Valur Andersen fh. Geirfuglaskers ehf. sækir um lóð nr. 63B við Vestmannabraut.
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað deiliskipulags. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. okt. 2017."
Hvers vegna hefur mér ekki fengið grenndarkynningu á þessum framkvæmdum?
Hvernig stendur á þvi að hann Valur er búinn að setja malarveg og gám norðan vegginn án þess að vera kominn með 100% samþykki? Hvað þá þegar hann hefur EKKi skila fullnægjandi teikningum.

Margrét Rós Ingólfsdóttir
Þú
spyrð hvernig stendur á því að Valur er búinn að setja malarveg og gám
þarna. Besta svarið er líklega af því að honum var úthlutuð lóðin og þá
hefur hann fulla heimild til þess.
Það er í gildi deiliskipulag og ef umsókn er í samræmi við það þá þarf ekki að grenndarkynna.
Öllum bæjarbúum gafst kostur á að koma með athugasemdir við deiliskipulagið, en það má sjá það hér:
http://vestmannaeyjar.is/.../a951-001-04...

Hann var búinn að leggja malarveginn áður enn þið afgreiddu málið.
Hefur hann heimild til að byrja fyrirfram verkið?
Og hefur hann heimild til verka þegar ekki liggur fullnægjandi teikningar?
Fáránlegt að það sé hægt að fela sig bakvið einhvað sem heitir deiliskipulag. Mér finnst það eðlilegra að að byggingar séu bygðar í sátt við nágrennana. Og finnst mér grenndarkynning eðlilegast til þess.
Ég þarf kannski að fara á "námskeið" í deiluskipulagi þar sem ég bjó í 40 ár uppá fjalli/höfða.
:)
Þarf að melta þennan tengill sem þú lést fylgja með.
Takk fyrir svarið Margrét Rós.
E.s. Taka það fram að ég er ALLS EKKI á móti því að það sé byggt þarna. Heldur hvernig er staðið að þessu gagnvart okkur sem þarf að þola þessa byggingar í framtíðinni. Þó að það voru byggingar þarna fyrir löngu, þá verða sennilega allt örðvísi hús reist. Og þar af aukið á að troða bílskúr við minn bílskúr. Ég vill bata vera sáttur við þessar byggingar, og ég vona að Valur vilji líka vera sáttur við nágrennana. Og við fáum kynningu á verkinu, og getum gert athugunarsemd við það. Þó ég efast um að ég mun gera einherjar dramatiskar athugunarsemdir við verkið.
Er að reyna að melta þetta hér: http://www.skipulag.is/.../Leidbeiningarblad-nr-8b...
http://www.althingi.is/altext/stjt/2016.007.html
http://www.skipulag.is/skipulagsmal/deiliskipulag/

Ummæli
Skrifa ummæli