Umhverfis- og skipulagsráð
Hönnunarsamkeppni um útlit frystiklefa
30.Ágúst'16 | 09:59
Í framhaldi
afgreiðslu umhverfis -og skipulagsráðs frá í júlí, varðandi útlit á
suðurgafli frystiklefa Vinnslusðvarinnar hefur VSV óskað eftir samstarfi
við Vestmannaeyjabæ um hönnunarsamkeppni um útlit gaflsins. Óskað er
eftir tveimur fulltrúum Vestmannaeyjabæjar í dómnefnd.
Umhverfis -og
skipulagsráð hrósar Vinnslustöðinni fyrir þann vilja og viðleitni til
þess að vanda til verka varðandi útlit á suðurgafli frystigeymslu við
Kleifar 2. Fulltrúar Vestmannaeyjabæjar í dómnefndinni eru formaður
ráðsins, Margrét Rós Ingólfsdóttir og Hafþór Halldórsson verkefnastjóri á
tæknideild. Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar eru Pétur Jónsson og
Þorsteinn Óli Sigurðsson.Umhverfis -og skipulagsráð veitir lóðarhafa heimild til þess að hefja framkvæmdir í samráði við samþykkt gögn, segir í bókun ráðsins.
Minnihlutinn vildi fá mann í dómnefnd
Stefán Ó. Jónasson, fulltrúi E-listans bókaði á fundinum að honum findist óeðlilegt að E-listinn eigi ekki fulltrúa í dómnefnd.Fulltrúar D-lista bókuðu þá eftirfarandi:
Fulltrúar meirihlutans telja ekkert óeðlilegt við að fulltrúi E-lista sitji ekki í ofangreindri dómnefnd og bera fullt traust til þeirra aðila sem hana skipa í þessu máli. Tillögur, afstaða og niðurstaða ofangreindrar dómnefndar mun verða kynnt fyrir Umhverfis -og skipulagsráði þegar að slíkt liggur fyrir, bæði til umræðna og afgreiðslu. Þar hefur fulltrúi E-listans, eins og í öllum öðrum málum sem tekin eru fyrir á fundi ráðsins, fulla heimild til þess að koma með athugasemdir við þá tillögu.
Margrét Rós Ingólfsdóttir
Esther Bergsdóttir
Ingólfur Jóhannesson
Kristinn Bjarki Valgeirsson
http://eyjar.net/read/2016-08-30/honnunarsamkeppni-um-utlit-frystiklefa/
Ummæli
Skrifa ummæli