Skólavegur 7 - Ársnes rifiið -Eyjafréttir.is




Myndir: Óskar Pétur Friðriksson

Ásnes rifið niður í gær

Í gær var Ásnes við Skólaveg rifið niður. Húsið Ásnes var reist árið 1922. Lengst af bjuggu í húsinu Bjarnhéðinn Elíasson, skipstjóri og útgerðarmaður og kona hans, Ingibjörg Johnsen og börn þeirra, Árni Johnsen, Áslaug, Þröstur og Elías. Ingibjörg rak lengi blómaverslun sína á jarðhæð hússins. 
 
Ekki tók niðurrifið langan tíma því á rúmum klukkutíma voru gröfurnar farnar að moka upp grunninn af húsinu.
Á lóðinni mun rísa fjölbýlishús eins teikningin sínir hér að neðan.

Ummæli